Ég var að skoða myndir og fann að afmæli dóttur minnar var eins og auglýsing frá Landsbankanum og uppáhalsdgjöfin eins og klippt út úr latabæ.
Hér eru myndirnar af afmælinu í boði Landsbankans og sprotanna
Svo var það gjöfin frá stóra bróa Sollu stirðu galli með kollu og alles..
Eru markaðsöflin að heltaka heimilið??
Bloggar | 26.6.2008 | 15:16 (breytt kl. 15:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kæra Íva, Sabba og þið hin sem nennið að leggja leið ykkar á bloggið. Ég skil ekki hvernig hægt er að bæta bloggi inn í dagsskrá dagsins. Ég ætla ekki að falla í þá gryfju að segjast ekki hafa tíma. Ég hef tíma en ég vel að verja honum í annað.
Það er heldur ekki eins og lífið sé tíðindalaust bara á síðasta mánuði hefur svo margt gerst að ég upplifi að ég sé hokin af reynslu.
En ég þakka ykkur samt fyrir að nenna að fylgjast með blogginu þó það sé verulega slappt.
Ég set inn nokkrar greinar frá inmate verkefninu hér
Þarna er ég búin að setja inn alla umfjöllun sem við höfum fengið.
Bloggar | 16.6.2008 | 14:54 (breytt kl. 14:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fékk smá kvörtun frá einni af fáum sem kíkja á bloggið þ.e henni Sædísi sem er aldrei kölluð annað en Íva.
Pent orðað var hún bara orðin hundleið á þessari Abba photoshop færslu minni..síðan í Mars eða eitthvað. Ég skil það vel. En einhvernvegin er alltaf svo brjálað að gera og tími til að blogga er takmarkaður.
Eða ég vel semsagt að gera eitthvað annað við tímann minn.
Það gengur allt vel endilega kíkja á inmate.is og skoða og kaupa! boli.
Ég hafði ekki heimsótt gömlu í langan tíma en við drifum okkur í gær og sóluðum okkur í sundlauginni í Hveró áður en við fengum vöfflur hjá frú Kristbjörgu. Ég stórgræddi því ég fékk með tvö handrit eftir pabba sem ég hef ekki lesið og nýjan endi á sögu sem ég fékk frá honum um jólin. Ég hafði eitthvað minnst á að ég hefði grenjað úr mér augun yfir endinum. Og viti menn ..hvort sem það var vegna minnar viðkvæmni eður ei þá er ég kominn með nýjan endi af sögunni, sem ég hlakka til að lesa.
Elsku Íva ég skal reyna að láta ekki líða svona langt á milli færslna. Því það er ekki eins og það gerist aldrei neitt. Það er bara einhvernvegin svo mikið að gerast!!
Bloggar | 28.4.2008 | 11:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég fór á bókasafnið um daginn og þar rakst ég á bók um söngflokkinn ABBA.
Það sem mér fannst athygliverðast við bókina var að hún var það gömul að hún var algjörlega laus við allt photoshop. Það var ekki búið að eiga við neina einustu mynd í bókinni. Stjörnurnar voru eðlilegar. Þar mátti finna bólur og hrukkur í nærmynd og portrett sem voru eðlileg. Það fékk mig til að hugsa um hvað þetta var mikið eðlilegra. Mér finnst þessi ást á photoshop vera komin út í algjörar öfgar. Fólk lætur meira að segja laga fjölskyldumyndir áður en þær eru settar á jólakortin. Jólakortin sem eru nota bene send til nánustu ættingja og vina!!
Fyrir skömmu las ég grein í einhverju blaði sem fjallaði um foreldra í USA sem létu laga skólamyndir af börnunum ef þau voru með útstæð eyru eða annað "lýti" sem foreldrið var greinilega ekki ánægt með. Hvaða skilaboð er eiginlega verið að senda út?
Ef hvergi birtast myndir af fólki sem er eðlilegt þá er ekki nema von að Jón og Jóna Jóns úti í bæ séu á þunglyndislyfjum það er enginn sem nær að standast kröfurnar. Svo ég tali nú ekki um börnin sem eru með átraskanir eða aðra útlits þráhyggju.
Ég einhvernvegin hélt að fólk tæki fjölskyldu myndir til að skrásetja hvernig fjölskyldan lítur út á hverjum tíma. Ég á enn eintak af fjölskyldumyndinni sem ég vildi alls ekki vera með á þegar ég var 6 ára en komst ekki upp með það og þar sit ég í systkinahópnum útgrenjuð, og rangeyg.. Allir í familíunni í tískunni 1972 enginn fótóshoppaður og fyrir vikið algjörlega ómetanleg heimildarmynd af fjölskyldunni.
Bloggar | 8.3.2008 | 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það stefndi allt í að við myndum senda djók aftur á júró..sluppum fyrir horn.
Silvía var allavega alter ego, mercedes club hefur ekki það að skýla sér bakvið...
Ég er allavega rosalega fegin fyrir okkar hönd að lagið sem fer var flutt í gær af fólki sem er ekki að grínast með þátttökuna. Flott hjá Regínu og Friðrik!!!
|
Eurobandið fer til Serbíu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 24.2.2008 | 18:13 (breytt kl. 18:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rakst á dæmi um hvað starf fréttamanna getur boðið upp á óvæntar uppákomur
http://www.youtube.com/watch?v=1xKd2DBekN0
Bloggar | 13.2.2008 | 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hundurinn okkar heitir Fídel ég rakst á þessa skótegund á London Fashion week og þetta er eins og þessir skór séu vörumerkið hans Fídel
Hér er svo orginal Fídel með Sögu.
Bloggar | 11.2.2008 | 17:27 (breytt 24.2.2008 kl. 18:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég fór á 4 vörusýningar fyrir vinnuna 2 í Kaupmannahöfn og tvær í London.
Kaupmannahöfn varð alveg óvænt svona express ferð, þurfti að þjappa á einn dag því sem ég ætlaði að gera á tveimur dögum en það hafðist með því að sleppa því að sofa (!)
Ég var í London í fyrsta skipti á ævinni ekki bara til að skipta um flugvél..Frekar hallærislegt að segja frá því. Þar sem ég er orðin 35 ára (!) og hef aldrei verið í London. En engu að síður satt. Þannig að fyrirtækið sem ég er að vinna fyrir skaffaði leiðsögumann og bílstjóra (sami maður). Ekkert slor, rolls og bílstjóri. (rollsinn er reyndar 1989 módel).
Ég fíla London alveg í ræmur enda var sól og logn frábært að rölta um þar. Var í Camden en það fór einhver bruni alveg framhjá mér. Það var allt of mikil gæsla í Downingstræti þannig að Tony gat ekki tekið á móti mér (kalla hann bara Tony af því mér finnst þessi nýi ekkert spes). Drollan var heima, það var flaggað í höllinni.
Ég fór í Harrods leiðsögumaðurinn dröslaði mér upp allar hæðir og sýndi mér það markverðasta. Það var keyrt með mig á alla markverða staði sem hægt var á þessum stutta tíma. Mér fannst verst að ná ekki sýningunni í Tate modern en ég verð bara að eiga það inni.
Bloggar | 11.2.2008 | 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er búin að vera á leiðinni til Kaupmannahafnar frá 4:45 þegar ég lagði af stað að heiman.
Nú er klukkan 19:15 og athugun kl 21:00. Það er búið að kalla út í vél tvisvar í dag og samtals er ég búin að sitja með sætisólarnar spenntar og sætisbökin upprétt og borðið í uppréttri stöðu jafn langan tíma og það tekur að fljúga til Kaupmannahafnar!!
Á meðan við bíðum fara flugvélar frá öllum öðrum flugfélögum af stað. Svo hvað er málið?Útskýringin er að vélar Iceland express séu af annarri gerð og hreyflarnir þoli ekki skafrenning.Vélarnar eru líka öðruvísi að utan og það er ekki hægt að afþýða þær (!)Ég svona velti fyrir mér hvort þeir ættu ekki að skipta um nafn og færa sig suður á bóginn, nú eða kaupa vélar sömu tegundar og Icelandair notar sem henta Iceland express.
Maður skilur svosem að maður lendi í allslags veðri búandi á þessu skeri..en í þessu tilfelli virðist það meira vera lélegur tækjakostur en veðrið sem er að trufla ferðir okkar farþeganna sem ætluðum með Express til Kaupmannahafnar og London
|
Sumarbústaður tókst á loft |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 7.2.2008 | 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)


beat2les
heidabj
prakkarinn
nonniblogg
morgunbladid




